Valmynd

Innskráðir notendur

· Virkir gestir: : 2

· Virkir notendur: : 0

· Skráðir notendur: : 81
· Nýir notendur: : Pascal

Skrá inn

Notandanafn

Lykilorð



Viltu stofna notanda?
Smelltu þá hér.

Ertu búinn að gleyma lykilorðinu þínu?
Sækja um nýtt lykilorð hér.

Velkomin(n)

Velkomin(n) á vefsíðu Kraftlyftingafélags Akureyrar.

Viktor Samúelsson kraftlyftingamaður ársins!




Viktor Samúelsson, fæddur 1993 hefur afrekað heilmikið á þessu ári. Sigraði unglinga og drengjaflokk á stigum á Íslandsmótinu í mars, fékk silfur á Evrópumóti unglinga -105 kg í drengjaflokki, varð jafnframt stigahæstur unglinga og drengja á Bikarmótinu í nóvember og annar í opnum flokki!

Þessi snáði tók 300 kg. í réttstöðulyftu, 200 í bekkpressu og 270 í hnébeygju á árinu! sló fjölmörg íslandsmet í drengja, unglinga og opnum flokki.

Það er stolt okkar KFA manna, að eiga efnilegasta, sterkasta og sætasta unglinginn og er það okkar von að þessi piltur haldi áfram að rústa hinum krökkunum í sportinu. Árið 2011 skaraði Viktor Samúelsson framúr og er því í ár valinn Kraftlyftingamaður ársins!

Gamlársmótið 2011 - keppendalisti og tímasetningar

Gamlársmótið 2011

Skráningarlisti:

Freydís Anna Jónsdóttir -72.0 kg fl. kvenna
Íris Hrönn Garðarsdóttir -72.0 kg fl. kvenna

Friðrik Svavarsson -93.0 kg fl. karla
Andri Jónsson -105 kg fl. karla
Einar Þór Birgisson -120.0 kg fl. karla
Erling Tom Erlingsson +120 kg fl karla
Grétar Skúli Gunnarsson +120 kg fl karla

keppni hefst klukkan 12:00 og vigtun klukkan 10:00
Keppendur eru minntir á að mæta tímanlega í vigtun.

Gleðileg jól!

Stjórn KFA óskar landsmönnum öllum gleðilegra jóla, árs og friðar. Þökkum samstarfið á árinu sem er að líða með von um bjarta framtíð fyrir íslenska þjóð og bætingar á komandi ári.

Nýr formaður

Hér með segi ég af mér formlega formennsku KFA og hefur Grétar Skúli tekið við keflinu.
Ákvörðunin var tekin af persónulegum ástæðum og spilar tímaleysi þar stóran þátt.
Ég verð enþá meðstjórnandi fram að næsta ársþingi í janúar og stjórninni innan taks.
Þakka fyrir mig og guð blessi.
-Einar Már

Gamlársmót í bekkpressu

Eins og svo mörg árin áður þá heldur KFA sitt árlega bekkpressumót í hádeginu á gamlársdag. Karlar og konur eru hvattar til að skrá sig til leiks, en skráningarfrestur rennur út aðfangadag eða 24. desember.
kfakureyri@gmail.com - þyngdarflokkur, kennitala og fullt nafn.
Endurglæðist á 0.01 sekúndna fresti
1,695,753 heimsóknir