Ertu búinn að gleyma lykilorðinu þínu? Sækja um nýtt lykilorð hér.
Einar Birgis með gott mót!
Fyrr í dag fór fram annað kópavogsmótið í kraftlyftingum, við KFA sendum auðvitað okkar albesta mann á staðinn ásamt þriggja manna hvatningaliði!
Einar Þ. Birgisson, gerði sér lítið fyrir og sigraði bekkpressuna með miklum yfirburðum þótt hann hafi aðeins náð meldingu (212,5 kg) en kappinn meldaði 220 kg í þriðju sem hann rétt missti. Þess ber að minnast á að Einar sló samtals 4 íslandsmet á þessu móti (opnum flokki & öldungaflokki) ásamt einu Akureyrarmeti sem hann átti sjálfur. Þeir sem þekkja til hans vita að þetta mót var ekkert annað en upphitun fyrir þær hrikalegu bætingar sem hann streymir að ásamt öðrum Akureyringum...