Valmynd
Innskráðir notendur
Skrá inn
Viltu stofna notanda?
Smelltu þá hér.
Ertu búinn að gleyma lykilorðinu þínu?
Sækja um nýtt lykilorð hér.
Byrjendamótið 20. febrúar n.k.
Skráningu er lokið fyrir byrjendamót Kraft, en það erum við í KFA sem höldum mótið í ár. Ákveðið hefur verið að halda mótið klukkan 15:00, en vigtun fer fram 2 tímum fyrir keppni, eða klukkan 13:00 í húsum KFA (Jötunheimum, Íþróttahöllinni við Skólastíg). Alls eru 12 keppendur skráðir og er hægt að skoða keppendalista nánar hér fyrir neðan!
| Nafn | Félag | Flokkur |
| Sævar Knútur Hannesson | Sindri | - 60,0 kg |
| Andrés Helgi Björnsson | KFA | - 60,0 kg |
| Tryggvi Johnsen | KFA | - 75,0 kg |
| Hjörtur Larsen Þórðarson | KFA | - 82,5 kg |
| Ari Valgeirsson | Kraftlyftingafélag Akraness | - 90,0 kg |
| Andri Már Jónsson | KFA | - 90,0 kg |
| Atli Jónsson | KFA | - 90,0 kg |
| Erlendur Helgi Jóhannesson | KFA | - 90,0 kg |
| Bragi Guðnason | KFA | - 100,0 kg |
| Kristján Helgi Hjartarson | Sindri | - 100,0 kg |
| Jón Snorri Þorsteinsson | Sindri | - 110,0 kg |
| Ragnar Ingi Jóhannesson | Sindri | - 125,0 kg |
Byrjendamótið í Kraftlyftingum
Ef að þig langar að keppa þá þarftu að skrá þig hjá því félagi sem þú ætlar að keppa fyrir, kfakureyri@gmail.com ef þú ætlar að keppa fyrir hönd KFA.
Koma þarf fram í hvaða þyngdarflokk þú ætlar að keppa og hvort þú verðir í drengja/unglinga eða opnum flokk. Skráningarfrestur er til 13. febrúar og verður mótsgjald 2000. krónur.
Einnig verður haldið dómaranámskeið en nánari upplýsingar um það er að finna á heimasíðu Kraftlyftingasambands ÍSÍ: http://kraft.is
Aðalfundur 2010
Aðalfundur KFA fór fram í sal félagsins (Jötunheima) og fór mætingin fram úr björtustu vonum.
Þingforseti var Einar Már og þingritari var Grétar Skúli.
Ný stjórn var kosin og komu tveir nýjir menn í hana, Erlendur verður varaformaður og Friðrik Örn kemur inn sem annar gjaldkeri. Stjórnin í heild sinni má síðan sjá undir „Stjórn“ hér á síðunni.
Einnig verða nokkrar breytingar í rekstri félagsins og má þar hæst kveða æfingargjöld KFA.
Verðinu verður stillt í hóf en ársgjaldið er sem hér segir
-20.000kr [Fyrir allt tímabilið og innifalið í verði er félagsgjald KFA]
Einnig verður hægt að greiða einn mánuð í senn
-2000kr eða
-3000kr fyrir þá sem ekki eru félagar í KFA.
Ársreikningurinn var lagður fram og skilaði félagið ágætum hagnaði þrátt fyrir mikil útgjöld á síðasta ári.
F.h Stjórnar KFA
Einar Már
30. Janúar!
3. Kosinn þingforseti og þingritari.
4. Ársskýrsla lögð fram og rædd.
5. Reikningar lagðir fram og ræddir.
6. Fjárhagsáætlun lögð fram.
7. Ársgjöld ákvörðuð.
8. Rætt um framkomnar tillögur og atkvæði greidd um þær.
9. Stjórnarkjör.
10.Kosnir endurskoðendur, tveir að tölu.
11.Kosnir þrír menn í kraftlyftingadómstól og þrír til vara.
12.Kosinn einn vefstjóri fyrir Kfa.is
13.Kosning kraftlyftingamanns ársins.
14.Önnur mál.
15.Þingfundargerðir lesnar og staðfestar.
16.Þingslit.


