Valmynd
Innskráðir notendur
Skrá inn
Viltu stofna notanda?
Smelltu þá hér.
Ertu búinn að gleyma lykilorðinu þínu?
Sækja um nýtt lykilorð hér.
Úrslit: Akureyrarmótið í bekkpressu
Akureyrarmótið í bekkpressu (gamlársmótið)
Gamlársmótið í bekkpressu (e.þ.s Akureyrarmótið í bekkpressu) fór fram sl. gamlársdag. Mótið átti að fara fram inní aðalsal Íþróttahallar Akureyrar, en varð einhver misskilningur milli okkar og forstöðumanna hússins. Það reddaðist nú samt og var haldið í engu síður glæsilegri aðstöðu, eða veislu sal Íþróttahallarinnar. Samtals mættu 15 keppendur þar af páverstjarnan María Guðsteinsdóttir (Ármann). Mikið var um bætingar á mótinu, en voru metin jörðuð hvað eftir annað, má þá helst nefna Einar Þór Birgisson (KFA) en hann rústaði samtals 6 metum á mótinu!
Veitir voru þrír stigabikarar á mótinu og var það Páll Andres Pálsson (KFA) sem sigraði opin flokk karla með mjög öruggri 200 kílóa kjötlyftu, Pál er bróðir Alfreðs Pálssonar sem vann þetta sama mót í fyrra - augljóst að þeir vilja halda þessum titli í fjölskyldunni! Einar Már Ríkarðsson (KFA) sigraði svo opin flokk unglinga (14-23 ára) en lyfti hann 181 kílói sem telst vera Íslandsmet í unglingaflokki. Þriðji stigabikarinn var veitur fyrir opin flokk kvenna, en var það María Guðsteinsdóttir sem sigraði þann flokk með miklum yfirburðum. - hægt er að sjá úrslit hér.
Yfirdómari mótsins var Þorvaldur Vestmann. Til hliðar: Kjartan Helgasson og Guðmundur Svanlaugsson. Yfirstangamaður var Sigfús Fossdal.

Mynd af stigameisturum mótsins ásamt Krystof Pokoiski
Aðlokum vill stjórn KFA þakka öllum sem hjálpuðu okkur við mótið, og þá sérstaklega vinum okkst hjá perform.is og AFA.
Gleðileg jól!

Gamlársmótið, og kraftlyftingamaður ársins!
Gamlársmótið!
Skráningu er lokið fyrir hið árlega Akureyramót í bekkpressu ("Gamlársmótið") og fer það fram nk. fimmtudag (gamlársdag). Eins og alltaf fer fram vigtun 2 tímum fyrir keppni, eða klukkan 11:00 í húsum KFA, Jötunheimum. Þar verður farið yfir keppnisbúnað samkvæmt hefð, og skráðar byrjunar þyngdir.
- Áhersla er lögð á skildu keppenda til að vera í löglegri samfestingu (singlet).
- Ef ekki er hægt að verða sér fyrir slíkum búnaði hafið vinsamlegast samband við okkur, í gegnum E-mail, eða farsíma – sjá stjórn.
- Keppnisgjald er 1000. kr og félagsgjöld 2000. kr.
Ákveðið hefur verið að halda mótið inní stórasal, en í ár skráðu sig alls 18. keppendur, í 7 þyngdarflokka og er óhætt að áætla fyrirtaks mót! - hægt er að skoða keppendalistan hér fyrir neðan:
Karlaflokkur
|
|
Kraftlyftingaþing og gamlársmótið
Kraftlyftingaþing KFA, 30. Janúar 2010:
Kraftlyftingaþing KFA verður haldið laugardaginn 30. janúar nk. Málefni sem félagsmenn óska eftir að tekin verði fyrir á þinginu, skulu tilkynnt stjórn KFA minnst 30 dögum fyrir þingið.
Á þinginu verðir einnig kosinn ný stjórn, og skulu allir sem vilja bjóða sig fram vera búnir að senda tilkynningu til núverandi stjórnar, amsk. 14 dögum fyrir þingið (16. Janúar 2010).
- Dagskrá, staður og stund verður auglýst síðar.
Gamlársmótið:
Hið árlega Akureyramót í bekkpressu verður haldið nk. gamlársdag. Vigtun fer fram stundvíslega 2 tímum fyrir keppni, eða klukkan 11:00 í húsum KFA, Jötunheimum. Þar verður farið yfir keppnisbúnað samkvæmt hefð, og skráð byrjunar þyngdir.
- Áhersla er lögð á skildu keppenda til að vera í löglegri samfestingu (singlet).
- Ef ekki er hægt að verða sér fyrir slíkum búnaði hafið vinsamlegast samband við okkur, í gegnum E-mail, eða farsíma – sjá stjórn.
Mótið hefst klukkan 13:00, óstaðfest er hvort mótið verði haldið í Jötunheimum eða í stóra salnum- fer aðalega eftir þáttöku.
- Keppendum er ráðlagt að mæta stundvíslega (amsk. 30 min. fyrir mót), svo þeir nái að hita upp, og kynna sér fyrirkomulag nánar.
Kraftlyftingaþing KRAFT:
Kraftlyftingaþing kraftlyftinganefndar ÍSÍ fer fram þann, 19. desember nk. Því miður komast fáir úr stjórninni á þetta merka þing, en viljum við hvetja alla félagsmenn sem komast að hafa samband við okkur (stjórnina) og nýta sameiginlegan rétt okkar til að taka þátt í þessu fyrsta þingi KRAFT innan ÍSÍ.

(Mynd af keppendum síðasta gamlársmóts)

