Hængsmótið 2010
Skráð af GSkuli þann 02.05.2010 12:43

Hængsmótið 2010

Hið árlega Hængsmót var haldið í Jötunheimum í gær. Fjólmennt var á mótstað og myndaðist mjög góð stemming meðal áhorfenda og keppenda. Í ár tóku samtals 4 keppendur þátt og er það mikil umbót frá árinu áður, en þá féll mótið niður.

Þeir voru þrír sem kepptu í sitjandi flokki (eingöngu bekkpressu), og var það Þorsteinn Sölvason sem sigraði hann með öruggri 145 kg. lyftu. Sveinbjörn Sveinbjörnsson keppti einn í standandi flokki og stóð sig með mikili prýði líkt, en hann lyfti samtals 435 kg. í samnlögðu.

Yfirdómari var Einar Már Ríkarðsson, til hliðar voru þeir Rúnar Friðriksson & Bjarki Garðarsson. Yfirstangarmaður var Kristján Heimir Buch og ritari Erlendur H. Jóhannesson - nánari úrslit eru eftirfarandi:

 

Hnébeygja

Flokkur Nafn 1 lyfta 2 lyfta 3 lyfta Þyngsta lyfta Wilks
-75kg Sveinbjörn Sveinbjörnsson 130 140 150 150 107,9

Bekkpressa

Flokkur Nafn 1 lyfta 2 lyfta 3 lyfta Þyngsta lyfta Wilks
-75kg Alexander Harðarson 95 105 110 105 78,26
-75kg Sveinbjörn Sveinbjörnsson 100 105 110 105 75,53
-90kg Þorsteinn Sölvason 135 140 145 145 95,85
-110kg Magnús Guðjónsson 90 100 105 100 60,39

Réttstaða

lokkur Nafn 1 lyfta 2 lyfta 3 lyfta Þyngsta lyfta Wilks
-75kg Sveinbjörn Sveinbjörnsson 150 170 180 180 129,47