Valmynd

Innskráðir notendur

· Virkir gestir: : 2

· Virkir notendur: : 0

· Skráðir notendur: : 81
· Nýir notendur: : Pascal

Skrá inn

Notandanafn

Lykilorð



Viltu stofna notanda?
Smelltu þá hér.

Ertu búinn að gleyma lykilorðinu þínu?
Sækja um nýtt lykilorð hér.

Lög

1. gr.
Félagið heitir Kraftlyftingafélag Akureyrar og skammstöfunin er K.F.A



2. gr.
Kraftlyftingafélag Akureyrar er samband einstaklinga, er gerast aðilar að því gegn greiðslu árgjalds, er ársþing ákveður hverju sinni. Til þess að gerast félagi í KFA verða menn að vera búsettir á Akureyri eða hafa átt þar heima í a.m.k eitt ár. Einungis löglegir meðlimir geta keppt undir merkjum KFA innan lands sem utan.



3. gr.
Starf KFA er í meginatriðum:
a) Að hafa yfirstjórn yfir allri starfsemi félagsins (K.F.A)
b) Að vinna að eflingu kraftlyftinga á Akureyri.



4. gr.

Málefnum KFA stjórna:
a) Aðalfundur KFA
b) Stjórn KFA.



5. gr.
Aðalfundur fer með æðsta vald í málefnum KFA. Fundinn sitja löglegir skuldlausir aðilar að sambandinu. Fundurinn skal árlega haldið í janúar. Skal það auglýst með 2ja mánaða fyrirvara. Málefni sem félagssaðilar óska eftir að tekin verði fyrir á fundinum, skulu tilkynnt stjórn KFA minnst 21 degi fyrir þingið. Þá skal stjórn KFA tilkynna félagsaðilum dagskrá fundsins ásamt tillögum og lagabreytingum, sem borist hafa í síðasta lagi 10 dögum fyrir fund. Aðalfundur er löglegur, ef löglega hefur verið til þess boðað.



6. gr.
Á kraftlyftingaþinginu hafa fulltrúar einir atkvæðisrétt, en auk þeirra eiga rétt á þingsetu og hafa þar málfrelsi og tillögurétt:
a) Stjórn KFA, varastjórn og endurskoðendur.
b) Fastir starfsmenn KFA.
c) Fulltrúar kraftlyftingadómarafélaga.
d) Allir nefndarmenn KFA.
e) Kraftlyftingadómstóll.
Auk þess getur stjórn KFA boðið öðrum aðilum þingsetu, ef hún telur ástæðu til.
Hver fulltrúi hefur einungis eitt atkvæði.



7. gr.
Félagsfund má halda, ef nauðsyn krefur eða helmingur félagsaðila óskar þess. Alla boðunar- og tilkynningafresti til félagsfund má hafa helmingi styttri, en til reglulegs fundar.
Á félagsfundi má ekki gera laga- og leikreglnabreytingar og ekki kjósa stjórn, nema bráðabirgðastjórn, ef meirihluti kjörinnar aðalstjórnar hefur sagt af sér eða hætt störfum af öðrum orsökum. Að öðru leyti gilda um það sömu reglur og um reglulegan aðalfund.



8. gr.
Störf aðalfundarins eru:
1. Þingsetning.
2. Skilríki fulltrúa lögð fram.
3. Kosinn þingforseti og þingritari.
4. Ársskýrsla lögð fram, rædd og samþykkt.
5. Reikningar lagðir fram og ræddir.
6. Fjárhagsáætlun lögð fram.
7. Ársgjöld ákvörðuð.
8. Rætt um framkomnar tillögur og atkvæði greidd um þær.
9. Stjórnarkjör.
10.Kosnir endurskoðendur, tveir að tölu.
11.Kosnir þrír menn í kraftlyftingadómstól og þrír til vara.
12.Kosinn einn vefstjóri fyrir Kfa.is
13.Kosning kraftlyftingamanns ársins.
14.Önnur mál.
15.Þingfundargerðir lesnar og staðfestar.
16.Þingslit.
Fái fleiri en þeir sem kjósa á jafnmörg atkvæði, skal kjósa um þá á ný bundinni kosningu. Verði þeir enn jafnir, ræður hlutkesti. Einfaldur meirihluti ræður úrslitum, nema um lagabreytingar sé að ræða, þá þarf 2/3 hluta greiddra atkvæða. Þingið getur með 2/3 atkvæðum viðstaddra fulltrúa leyft að taka fyrir mál, sem komin eru fram eftir að dagskrá þingsins var send félagsaðilum.



9. gr.
Stjórn KFA skipa 5 menn, formaður, varaformaður,ritari, gjaldkeri og meðstjórnandi.
Kjósa skal bundinni leynilegri kosningu til eins árs í senn. Formaður er kosinn fyrst og síðan 4 meðstjórnendur og 3 í varstjórn. Meðstjórnendur skipta með sér verkum á fyrsta fundi stjórnar. Varamenn koma inn, ef aðalmenn forfallast í þeirri röð, sem þeir eru kosnir. Stjórninni er heimilt að ráða launað og ólaunað starfsfólk.
Reikningsár sambandsins er almanaksárið.



10. gr.
Starfssvið stjórnar KFA er:
a) Að framkvæma ályktanir kraftlyftingaþingsins.
b) Að vinna að eflingu kraftlyftinga á Akureyri.
c) Að líta eftir því að lög KFA og leikreglur IPF séu haldnar.
d) Að setja nauðsynleg bráðabirgðaákvæði.
e) Að raða niður og ákveða stað og tíma fyrir Akureyrarmót. Það skal að jafnaði gera í september.



11. gr.
Formaður KFA boðar stjórnarfundi og stjórnar þeim.



12. gr.
Endurskoðendur sambandsins eiga rétt á að kynna sér bókhald félagsins hvenær sem þeim þóknast.



13. gr.
Gerist aðili brotlegur við lög og samþykktir félagsins getur stjórn KFA vísað honum úr félaginu.
Ákvörðun stjórnar um brottvísun má skjóta til kraftlyftingaþings, sem getur ógilt hana eða staðfest.



14. gr.
Einungis félagar KFA geta orðið félagsmeistarar/Akureyrarmeistarar í kraftlyftingum.



15. gr.
Tillögur um að leggja KFA niður má aðeins taka fyrir á löglegu kraftlyftingaþingi. Atkvæði 3/4 viðstaddra þarf til að samþykkja slíka tillögu.



16. gr.
Velja skal kraftlyftingamann félagsins árlega. Skal það gert á ársþingi með leynilegri kosningu.

Endurglæðist á 0.01 sekúndna fresti
1,461,106 heimsóknir